20. júní. 2014 10:01
Í tilefni af Jónsmessu verða tvennir tónleikar haldnir í Akranesvita á morgun, laugardag. Viðburðurinn kallast Söngvitar og stendur til að tónleikar verði haldnir í og við vita um landið allt. „Íslenska vitafélagið - félag um íslenska strandmenningu hvetur alla tónlistarmenn til að finna sér vita til að spila í eða við, laugardagskvöldið 21. júní. Sjálf Jónsmessunótt er á mánudegi og því var ákveðið að tónleikarnir hefjist á miðnætti laugardagsins,“ segir í fréttatilkynningu frá Íslenska vitafélaginu. Hljómsveitin Famina Futura mun hefja tónleika sína í Akranesvita kl. 20. Hljómsveitin flytur frumsamda, melódíska tónlist í ætti við popp / folk / country. Síðar um kvöldið, eða klukkan 23.59 hefjast hinir eiginlegu Söngvita tónleikar þar sem Patrycja Szałkowicz-Żak sér um tónlistarflutning. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkir tónleikar fara fram hér á landi og vonast vitafélagið til þess að framhald verði á tónleikahaldi í vitum landsins. Frítt verður á báða tónleikana í Akranesvita og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.