18. júní. 2014 03:01
Alþingi kemur í dag saman til fundar til að taka til umfjöllunar og afgreiðslu lög gegn áframhaldandi verkfallsaðgerðum flugvirkja Icelandair. Ljóst er að kjaradeila flugvirkja og Icelandair er í hnút og langt á milli deiluaðila. „Það er gríðarlega mikilvægt að eyða þeirri óvissu sem uppi er, ekki bara bara fyrir ferðaþjónustuna heldur eru miklir almannahagsmunir í húfi. Verkfall er helgur réttur launþega, en það að setja lög á áframhaldandi verkfallsaðgerðir flugvirkja er algjört neyðarúrræði,“ segir í ályktun frá stjórn Samtaka aðila í ferðaþjónustu, sem samtökin sendu frá sér rétt í þessu.
„Á síðasta ári var ferðaþjónustan stærsta útflutningsatvinnugrein landsins og námu gjaldeyristekjur hennar 274 milljörðum króna. Þá hlaupa beinar og óbeinar skatttekjur á tugum milljarða. Á degi hverjum sem verkfall stæði yfir yrði fjárhagslegt tjón fyrir þjóðarbúið gífurlegt. Þegar stærsta ferðamannasumar sögunnar er hafið er óásættanlegt að fámennur hópur launþega geti stefnt stærstu útflutningsatvinnugrein landsins í voða með þeim hætti sem raun ber vitni,“ segir í ályktun SAF.