24. júní. 2014 08:01
Opna SjóSnæ mótið var haldið 20. og 21. júní. Setti það svip sinn á bæjarfélagið eins og venjulega. Keppendur voru 28 á sjö bátum og var veðrið ágætt báða dagana; lítill vindur og rigning fyrri daginn en þurrt og nánast logn þann seinni. Þeir Sigurjón Helgi Hjelm í SjóSnæ og Hallgrímur Skarphéðinsson í SjóSigl settu nýtt met á mótum SJÓL en þeir veiddu báðir ufsa sem voru 14,920 kíló.
Lokahóf var svo haldið í Röst á Hellissandi á laugardagskvöldinu og þar fór fram verðlaunaafhending. Einar Ingi Einarsson úr SjóAk varð aflahæstur á mótinu en hann veiddi 703,28 kíló. Aflahæsta konan kom líka frá SjóAk; Guðrún Jóhannesdóttir sem veiddi 433,98 kíló. Stærsta fisk mótsins veiddi Wojciech Maciej Kwiatkowski úr SjóSnæ, þorsk sem vó 15,91 kíló. Flestar tegundir veiddi Jón Einarsson úr SjóSnæ hann veiddi sjö tegundir og var meðalþyngdin 3,851 kíló en með mestu meðalþyngd veiddra fiska var Albert Guðmundsson úr SjóSnæ; 4,49 kíló.