24. júní. 2014 10:47
Ríkislögreglustjóri hefur sett á stofn fimm manna utanaðkomandi fagráð sem taka á til umfjöllunar mál er varða beina og óbeina mismunun, kynbundna áreitni, kynferðislega áreitni, kynbundið ofbeldi og einelti innan lögreglunnar. Samkvæmt tilnefningu jafnréttisnefndar lögreglunnar hefur ríkislögreglustjóri skipað Davíð Þór Björgvinsson prófessor, sem jafnframt er formaður ráðsins, Láru V. Júlíusdóttur hrl., Jón Friðrik Sigurðsson prófessor, Önnu Kristínu Newton sálfræðing og Finnborgu Salome Steinþórsdóttur jafnréttisfulltrúa lögreglunnar til að taka sæti í fagráðinu. Allar tilkynningar til fagráðsins skulu berast skriflega til formanns, með tölvupósti á netfangið fagrad@logreglan.is