25. júní. 2014 10:01
Brákarhátíð í Borgarnesi verður haldin næstkomandi laugardag, 28. júní. Allur undirbúningur er unninn í sjálfboðavinnu með stuðningi frá fyrirtækjum og sveitarfélaginu Borgarbyggð. Dagskráin er fjölbreytt og er ætlað að höfða til allrar fjölskyldunnar. Hátíðin í ár hefst kl. 9:00 árdegis á Brákarhlaupi sem verður í léttari kantinum í ár. Farin verður sama leið og Þorgerður Brák hljóp á sínum tíma með Skallagrím á hælunum, frá Granastöðum við Sandvík og niður að Brákarsundi, þar sem hún lét reyndar lífið. Það má hlaupa ganga og hjóla þessa leið, aðalatriðið er að allir séu með, segir í tilkynningu vegna hátíðarinnar. Í lok hlaups verður boðið upp á morgunmat við Brákarsund, bátasiglingar, víkingaskart fyrir börnin og ljósmyndasýningu. Kl. 12:30 hefst síðan keppni í leðjubolta í Englendingavík.
Víkingahátíðin hefst kl. 13:30 með skrúðgöngu frá Brákarsundi inn í Skallagrímsgarð. Þar verða víkingatjöld, víkingabardagi, handverksfólk úr héraði, verðlaunaafhending í skreytingakeppni milli hverfa og gatna o.m.fl. Klukkan 19:30 verður gengið frá planinu við Hjálmaklett niður í Englendingavík þar sem haldin verður kvöldvaka og hljómsveitin Bland mun skemmta gestum. Hátíðin endar síðan á tónleikum með Sálini hans Jóns míns í Hjálmakletti.
Bærinn skreyttur
Búið er að skipta Borgarnesi í litasvæði; gult, rautt og blátt og munu íbúar skreyta sínar götur í viðeigandi litum. Verðlaun verða veitt fyrir skemmtilegasta hverfið, götu ársins, frumlegustu skreytingu fyrirtækis eða stofnunar og flest „læk“ á fésbókinni. Einnig er mælst til að íbúar klæðist réttu litunum og dragi ekki úr. Reikna má með litríkum söfnuði við Brákarsund kl. 13:30 þaðan sem skrúðgangan upp í Skallagrímsgarð leggur af stað og hressum hópi sem mætir með söngbækurnar sínar við Hjálmaklett um kvöldið. Hægt er að nálgast söngtexta og frekari upplýsingar um dagskrána á www.brakarhatid.is
Knattspyrnudeildin með fjáröflun
Knattspyrnudeild Skallagríms stendur fyrir tónleikum og stórdansleik og þriðja árið í röð er það Sálin sem spilar á Brákarhátíð. Miðaverð hefur hækkað lítillega frá síðasta ári, segir í tilkynningu frá Skallagrími, en í fyrsta sinn núna fær knattspyrnudeild hluta af miðaverði en ekki eingöngu hagnað af veitingasölu í sinn hlut. Ballið er ein af mikilvægustu fjáröflunum deildarinnar, en þess má einnig geta að klukkan fjögur síðdegis á laugardag tekur Skallagrímur á móti Afríku í 4. deildinni á Skallagrímsvelli.