24. júní. 2014 05:15
Laugardaginn 28. júní verður efnt til helgigöngu í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli í samstarfi við heimamenn og starfshóp þjóðkirkjunnar um helgistaði á föruleiðum. Gengið verður frá Öndverðarnesi að Gufuskálum. Mæting er við Ingjaldshólskirkju kl. 13 og ekið út á Öndvarðarnes þar sem fyrsta helgistundin verður haldin. Þaðan verður gengið í áföngum eftir ströndinni að Gufuskálum, ýmist í þögn eða samræðum. Áð verður reglulega, haldnar stuttar helgistundir og sagðar sögur af merkum atburðum, minnisstæðu fólki, helgisagnir og þjóðlegur fróðleikur sem tengist leiðinni og lífi fólks að fornu og nýju. Göngufólk les ritningarorð og fornsögutexta. Þetta er í þriðja sinn sem slík helgiganga er farin í Þjóðgarðinum og í þetta sinn með nokkuð öðru sniði en áður. Eftir gönguna verður boðið upp á kaffisopa í safnaðarheimili kirkjunnar á Ingjaldshóli. Dagskráin er fjölskylduvæn og allir hjartanlega velkomnir. Nauðsynlegt er að vera vel skóaður og hafa drykkjarvatn með sér sem og annað nesti. Ekkert þátttökugjald.
–fréttatilk.