26. júní. 2014 04:38
Verkalýðsfélag Akraness hefur vísað til Ríkissáttasemjara deilu félagsins við Samband íslenskra sveitarfélaga vegna þeirra starfsmanna sem starfa hjá Akraneskaupstað. Samningurinn rann út 1. maí síðastliðinn og þrátt fyrir að um tveir mánuðir séu liðnir hafa litlar viðræður átt sér stað, segir í frétt á heimasíðu félagins. Það hefur lagt fram ítarlega kröfugerð en ekki fengið neina efnislega svörun hvað hana varðar. „Grundvallaratriðið í þessu er að Samband íslenskra sveitarfélaga hefur samið við fjöldann allan af hópum og nægir að nefna í því samhengi BHM, grunnskólakennara og nú síðast leikskólakennara. Hafa þær launahækkanir verið langtum hærri heldur en samið var um í svokölluðum ASÍ samningum á hinum almenna vinnumarkaði. Það er mat Verkalýðsfélags Akraness að það eigi að vera afar einfalt mál að semja við félagið enda hefur Samband íslenskra sveitarfélaga slegið tóninn í áðurnefndum samningum,“ segir Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA.