30. júní. 2014 09:13
Gert er ráð fyrir fyrir þremur eða fjórum lægðum við landið í vikunni. Má því búast við sérlega vinda- og úrkomusömu veðri miðað við árstíma. Skil fyrstu lægðarinnar ganga yfir í dag og verður sunnan- eða suðaustan 5-13 m/s á landinu. Hviður verða allt að 25-30 m/s á veginum við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi um tíma upp úr hádegi. Eftir það lægir heldur, en upp úr hádegi á morgun er von á næstu roku með suðaustan hvassviðri og jafnvel stormi með hviðum yfir 35 m/s um vestanvert landið. Lengst af verður talsverð rigning sunnan- og vestanlands og hiti 9 til 14 stig. Fleiri lægðum er síðan spáð fyrir helgi. Úrkomuminna verður á norðaustur- og austurlandi og hiti 13 til 20 stig.
Fólki er bent á að fylgjast vel með veðurspám næstu daga. Einkum er þeim sem hyggjast ferðast með ferðavagna og hestakerrur bent á að fylgjast vel með vindaspám.