01. október. 2014 12:44
LiveWell vefurinn; www.livewell-community.eu er hannaður með þarfir parkinsonsjúklinga í huga, sérstaklega þeirra sem eru nýlega greindir með parkinsonsjúkdóminn og aðstandendur þeirra. Undanfarna mánuði hafa parkinsonsamtök í nokkrum löndum, aðstandendur og heilbrigðisstarfsmenn metið vefinn og er vefurinn enn í stöðugri þróun. LiveWell vefnum er skipt í svæði. Á einum stað eru almennar upplýsingar og á öðrum stað er einkasvæði. Allir hafa aðgang að almenna svæðinu þar sem hægt er að nálgast upplýsingar og annað er við kemur parkinsonsjúkdóminum. Það verður að skrá sig inn á einkasvæðið þar sem hægt er að hafa samskipti við sjúklinga, aðstandendur og heilbrigðisstarfsmenn.
LiveWell verkefnið; http://www.livewell-community.eu er styrkt af Evrópusambandinu, undir flokknum fullorðinsfræðsla, “Lifelong Learning Programme”. Verkefnastjóri er INOVA+ (Portúgal) og samstarfsaðilar eru: Háskólinn í Plymouth (Bretland), BitMedia (Austurríki), Parkinsonsamtökin í Madrid (Spánn), Ana Aslan International Foundation (Rúmenía); Samvil ehf (Ísland), and Brežice General Hospital (Slóvenía).
-fréttatilkynning