07. október. 2014 02:41
Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi rann út mánudaginn 22. september sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust sex umsóknir um stöðuna. Umsækjendur eru: Ágústa Elín Ingþórsdóttir, Gylfi Þorkelsson, Hafdís Fjóla Ásgeirsdóttir, Hafliði Páll Guðjónsson, Jens Benedikt Baldursson og Þorbjörg Ragnarsdóttir. Miðað er við að menntamálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. janúar 2015, að fenginni umsögn skólanefndar.