29. október. 2014 06:00
Lögreglan í Borgarfirði og Dölum viðhafði töluvert eftirlit með veiðimönnum á svæðinu í upphafi rjúpnaveiðitímabilsins sem hófst um síðustu helgi. Höfð voru afskipti af þó nokkrum veiðimönnum, jafnt á veiðislóð sem á leið til veiða. Höfðu langflestir allt sitt á hreinu, voru með byssuleyfi, veiðikort og byssuna skráða. En misjafn sauður er í mörgu fé og þegar upp var staðið eftir þessa fyrstu veiðihelgi hafði LBD lagt hald á fimm haglabyssur og eina rjúpu. Mega þessir aðilar búast við að verða kærðir fyrir vopnalagabrot. Að sögn lögreglu var ýmsu við borið þegar höfð voru afskipti af veiðimönnum. Einn ungur veiðimaður sem ekki hafði aldur til að fá byssuleyfi kvaðst bara hafa verið að halda á byssunni fyrir föður sinn sem væri bakveikur. Þrír höfðu gleymt að fá undirritaða lánsheimild þegar þeir fengu byssu lánaða hjá félaga sínum. Þá voru nokkrar rjúpnaskyttur tilkynntar að veiðum í óleyfi landeiganda. Af öðrum málum lögreglu má nefna að tveir ökumenn voru teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna í vikunni. Hjá báðum fundust neysluskammtar. Alls urðu átta umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar í Borgarfirði og Dölum í vikunni. Í tveimur þeirra urðu minniháttar meiðsli á fólki.