03. desember. 2014 03:04
Stjórn Landssambands hestamannafélaga samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær að verða við beiðni Gullhyls um breytt staðarval á Landsmóti hestamanna árið 2016. Mótsstaðurinn verður færður frá Vindheimamelum í Skagafirði heim að Hólum í Hjaltadal. Fyrirhugaðir samningar miðast við þá staðetningu. Samþykktin er með þeim fyrirvara að Gullhylur sendi staðfestingu þess efnis til LH, frá mennta- og menningarmálaráðherra og sveitarstjórn Skagafjarðar fyrir 22. desember nk.
Eins og kemur fram í beiðni Gullhyls, þá var Landsmót síðast haldið að Hólum 1966 og því viðeigandi að fagna þeim tímamótum að slétt 50 ár séu liðin með því að halda glæsilegt Landsmót á þessum sögufræga stað að nýju. Á Hólum er góð aðstaða fyrir hendi; mikill fjöldi hesthúsplássa, þrjár reiðhallir, mikið gistirými auk þess sem Sögusafn íslenska hestsins er að Hólum. Þar er einnig rekin hestafræðideild Hólaskóla sem er opinber miðstöð menntunar og rannsókna á sviði hrossaræktar, tamninga, reiðmennsku og reiðkennslu á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Lárus Ástmar Hannesson formaður LH sendi út eftir fundinn í gær.