05. janúar. 2015 08:01
Afli skipa HB Granda var 152.500 tonn á nýliðnu ári og aflaverðmætið var tæpir 15,2 milljarðar króna. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að þetta sé nokkur samdráttur frá árinu á undan en þá var aflinn rúmlega 188.200 tonn að verðmæti rúmlega 16,8 milljarða króna. Skýringanna á minni afla og lægra aflaverðmæti er fyrst og fremst að leita í samdrætti í kvóta á helstu uppsjávarfisktegundum. Loðnuvertíðin var vart svipur hjá sjón miðað við árið á undan og þá voru aflaheimildir í norsk-íslensku síldinni skertar töluvert á milli ára. Þá var frystitogurum fækkað um tvo; Venus HF var seldur úr landi og Helgu Maríu AK var breytt í ísfisktogara. Afli og aflaverðmæti frystitogaranna dróst því saman á meðan aukning varð hjá ísfisktogurunum.