Senda Skessuhorni fréttaskot
Spurning vikunnar
Hver er þinn uppáhalds mánuður
Áskrift að Skessuhorni
Færð á vegum
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
05. janúar. 2015 10:01

Lyfjakostnaður sjúklinga lækkaði um áramótin

Hlutur sjúkratryggðra í lyfjakostnaði lækkaði 1. janúar sl. samkvæmt reglugerð sem heilbrigðisráðherra gaf út. Þak á árlegum hámarkskostnaði lyfjanotenda lækkar um 10%; fer hjá almennum notendum úr 69.416 kr. í 62.000 kr. og hjá börnum og lífeyrisþegum og ungmennum yngri en 22 ára  úr 46.277 kr. í 41.000 kr.

 

Jafnframt því sem hámarksþak lyfjakostnaðar á tólf mánaða tímabili lækkar um 10% lækka að sama skapi fjárhæðir afsláttarþrepa í lyfjagreiðslukerfinu. Lyfjagreiðslukerfið miðast við að notendur borgi lyf sín að fullu þar til ákveðinni fjárhæð er náð, en eftir það greiða sjúkratryggingar 85% af verði lyfjanna á móti 15% hlutdeildar sjúklings. Full greiðsluþátttaka almenns lyfjanotanda miðast nú við 24.075 kr. en lækkar niður í 22.000 kr. og hjá börnum og lífeyrisþegum fer þessi fjárhæð úr 16.050 kr. í 14.500 kr.

 

Auk þessara breytinga lækkar virðisaukaskattur á lyf úr 25,5% í 24%.  

Leit á vefnum
Fréttasafn
Næsta ár Fyrra ár
Mest lesið í vikunni
Aðsendar greinar
Hulda Hrönn Sigurðardóttir

Þjónusta við einstaklinga með ...

Ásmundur Einar Daðason

Ljósleiðari á hvert heimili

Bjarni Jónsson

Landsnet verði í samfélagseigu

Ólafur Óskarsson

Betri byggð, öruggari umferð

Lilja Rafney Magnúsdóttir

Spilavíti eru „Víti til varnað...

Frá mbl.is

Ekki tókst að sækja efni

Frá visir.is

Ekki tókst að sækja efni

Skessuhorn á Facebook Skessuhorn á LinkedIn Skessuhorn á Twitter Skessuhorn á Instagram Skessuhorn ehf. kt. 560103-3870 - Kirkjubraut 56, 300 Akranes - Sími 433 5500 - Ritstjórn skessuhorn@skessuhorn.is