14. janúar. 2015 12:56
Um síðustu áramót urðu breytingar á þjónustukerfi VÍS víða um land. Þegar þannig stendur á eiga sér gjarnan stað mannabreytingar á skrifstofunum sem oft eru tengdar starfsaldri. Meðal þeirra sem létu af störfum hjá VÍS um áramótin var Jón Gunnlaugsson sem um árabil hefur verið umdæmisstjóri fyrirtækisins á Vesturlandi og starfað hjá VÍS og forvera þess félags í tæplega 28 ár. Jón stendur nú á þeim tímamótum sem gjarnan er talað um að setjast í helgan stein, þó hinn hefðbundni starfslokaaldur sé ekki kominn hjá honum. Þeir sem þekkja Jón vita þó að gamli fótboltakappinn og félagsmálamúrinn muni væntanlega hafa sitthvað fyrir stafni áfram. Þegar blaðamaður Skessuhorns heimsótti Jón Gull á heimili hans við Kirkjubraut á Akranesi á dögunum og spurði hvort þetta yrði ekki mikil breyting og hvort hann væri tilbúin takast á við hana, svaraði Jón: „Jú vissulega, en ég vissi svo sem alveg að ég myndi hætta í þessu starfi núna og er undirbúinn fyrir það. Þetta er bara svipuð ákvörðun eins og þegar ég ákvað að hætta í fótboltanum á sínum tíma. Það var bara ákveðið kvöldið fyrir bikarúrslitaleikinn sem við Skagamenn unnum árið 1982. Ég man að ég sat þá með George Kirby þáverandi þjálfara liðsins og sagði að það væri best að ég hætti að spila eftir tímabilið. Þar með var það ákveðið og ég held það hafi verið rétt ákvörðun þó að ég hafi alveg verið í standi til að spila nokkur ár í viðbót enda ekki nema 32 ára gamall.“
Sjá viðtal við Jón Gunnlaugsson í Skessuhorni sem kom út í dag.