Senda Skessuhorni fréttaskot
Spurning vikunnar
Hver er þinn uppáhalds mánuður
Áskrift að Skessuhorni
Smáauglýsingar

buy jwh-018 5cladba etizolam 4mmc 3mmc ketamine

buy jwh-018 5cladba etizolam 4mmc 3mmc ketamine Get the best quality directly from us, DH labs ...
Færð á vegum
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
26. janúar. 2015 09:01

Vefsíðan neteinelti.is færð til Heimilis og skóla

Ellefu manna hópur kennaranema í grunnskólakennarafræðum gerði stuttmynd og vefinn neteinelti.is sem lokaverkefni til B.Ed. gráðu vorið 2014. Hópurinn ákvað nýverið að færa Heimili og skóla, landssamtökum foreldra, vefinn til umsjónar en samtökin hafa þegar notað hann í fræðslustarfi sínu í grunnskólum. Vefurinn neteinelti.is á vel heima í fræðslustarfi samtakanna en Heimili og skóli stýra SAFT verkefninu sem stendur fyrir samfélag, fjölskylda og tækni og er það formlegt samstarfsverkefni Heimilis og skóla, Ríkislögreglustjóra, Rauða krossins og Barnaheilla – Save the Children á Íslandi  um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi. Heimili og skóli og SAFT standa fyrir öflugu fræðslustarfi m.a. í grunnskólum og hafa góð tengsl við skóla og samtök foreldra um allt land.

 

 

Vefurinn neteinelti.is og stuttmyndin sem honum fylgir fjalla um neteinelti; forvarnir, viðbrögð og afleiðingar þess. Stuttmyndin er um 16 mínútna löng með viðtölum við ungmenni og ýmsa fagaðila sem þekkja efnið vel. Á vefnum neteinelti.is er einnig mikið af fræðandi efni m.a. um hættumerki, hlutverk skóla, ýmis samskiptaforrit og boðleiðir neteineltis. Einnig eru á vefnum stutt viðtöl m.a. um nafnleynd og dreifingu mynda og reynslu foreldris og ungmennis. Þarna eru góð ráð til uppalenda og upplýsingar um hvert börn og ungmenni, foreldrar og kennarar geta leitað þegar einelti á netinu kemur upp og margt fleira.

 

Neteinelti.is er annað tveggja verka sem urðu til undir merkjum skapandi hópverkefnis til B.Ed. gráðu vorið 2014. Hitt er brúðuleikhús í fimm þáttum um þau Von og Trausta, efni sem nota má til að byggja upp góðan bekkjaranda og styrkja jákvæð samskipti meðal yngstu grunnskólabarnanna. Þverfaglegt nám og læsi var viðfangsefnið vorið 2013 en nú er skapandi hópverkefni komið í gang í þriðja sinn og áherslan sem fyrr á sköpun, teymisvinnu, kennslufræði og kennarastarfið.

Sjónvarp Skessuhorns
Leit á vefnum
Fréttasafn
Næsta ár Fyrra ár
Mest lesið í vikunni
Aðsendar greinar
Hulda Hrönn Sigurðardóttir

Þjónusta við einstaklinga með ...

Ásmundur Einar Daðason

Ljósleiðari á hvert heimili

Bjarni Jónsson

Landsnet verði í samfélagseigu

Ólafur Óskarsson

Betri byggð, öruggari umferð

Lilja Rafney Magnúsdóttir

Spilavíti eru „Víti til varnað...

Frá mbl.is

Ekki tókst að sækja efni

Frá visir.is

Ekki tókst að sækja efni

Skessuhorn á Facebook Skessuhorn á LinkedIn Skessuhorn á Twitter Skessuhorn á Instagram Skessuhorn ehf. kt. 560103-3870 - Kirkjubraut 56, 300 Akranes - Sími 433 5500 - Ritstjórn skessuhorn@skessuhorn.is