27. janúar. 2015 11:36
Síðastliðinn föstudag undirrituðu Knattspyrnufélag ÍA og Olís nýjan samstarfssamning til þriggja ára. Í tilkynningu frá félaginu segir að frá 1982 hafi Olís verið einn af aðalsamstarfsaðilum Knattspyrnufélags ÍA. Á þeim tíma hefur samstarfið verið báðum aðilum farsælt og hefur Knattspyrnufélag ÍA til að mynda skilað 16 Íslands- og bikarmeistaratitlum í meistaraflokki karla á þessu tímabili.
„Við hjá Knattspyrnufélagi ÍA erum ákaflega stoltir af því að Olís hefur ákveðið að endurnýja samstarfssamning við okkur og lítum á það sem mikið traust á þeirri miklu uppbyggingarvinnu sem farið hefur fram í félaginu á undanförnum árum. Við sjáum þess merki í starfi félagsins að bjartari tímar eru framundan og vonandi er þess ekki langt að bíða að enn betri árangur skili sér í hús. Það er jafnframt von okkar að félagsmenn og aðrir stuðningsmenn ÍA fylki sér á bakvið þá aðila sem styðja félagið,“ segir Magnús Guðmundsson formaður Knattspyrnufélags ÍA.
Jón Ólafur Halldórsson forstjóri Olís segir: „Olís og ÍA hafa bundist sterkum vinatengslum í fjöldamörg ár. Stuðningur Olís er ekki eingöngu fjárframlag heldur einnig til ávinnings fyrir unglinga og barnastarf með ýmsar fjáröflunarvörur. Við hjá Olís erum stolt af okkar samstarfi við ÍA og óskum þeim alls hins besta á komandi árum.“