29. janúar. 2015 02:00
Ráðstefna verður á morgun föstudaginn 30. janúar frá kl. 9:30 – 14:30 í Hjálmakletti í Borgarnesi. Þar verður fjallað á víðum grunni um framtíð háskóla í héraðinu. Ráðstefnan er öllum opin og eru íbúar hvattir til að mæta.
Dagskrá ráðstefnunnar er þessi:
09:30-09:40 Setning
Guðveig Eyglóardóttir formaður byggðaráðs Borgarbyggðar
09:40-10:00 Hlutverk háskóla í þróun svæða
Kolfinna Jóhannesdóttir sveitarstjóri Borgarbyggðar
10:00-10:20 Háskóli og samfélag
Vilhjálmur Egilsson rektor Háskólans á Bifröst
10:20-10:40 Háskólar í dreifbýli. Hlutverk og ögranir
Björn Þorsteinsson rektor Landbúnaðarháskóla Íslands
10:40-11:00 Kaffihlé
11:00-11:20 Sérstaða Snorrastofu. Rannsóknir í sínu rétta umhverfi
Bergur Þorgeirsson forstöðumaður Snorrastofu
11:20-11:40 Hugmyndir um sameiginleg verkefni fyrir háskóla
Óskar Guðmundsson formaður Framfarafélags Borgfirðinga
11:40-12:20 Svæðisþróun og starfsemi haskóla
Anna Karlsdóttir
12:20-13:00 Léttur hádegisverður
13:00-13:30 Framtíð háskóla í Borgarbyggð
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra
13:30-14:30 Panel umræður
Anna Elísabet Ólafsdóttir aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst
Ráðstefnuslit
Skráning með tölvupósti á borgarbyggd@borgarbyggd.is
Verð fyrir léttan hádegismat 750 kr.