02. febrúar. 2005 01:33
Í Skessuhorni sem kemur út í kvöld er sagt frá því að Borgarland, eignarhaldsfélag sem að stærstum hluta er í eigu Kaupfélags Borgfirðinga og á húsnæði Hyrnutorgs í Borgarnesi, hefur stór áform um byggingarframkvæmdir svæðinu handan götunnar við Hyrnutorg. Að sögn Guðsteins Einarssonar framkvæmdastjóra Borgarlands áformar félagið að byggja eitt til þrjú fimm til sex hæða hús á lóðinni gegnt Hyrnutorgi við Borgarbraut. Á neðstu hæð hússins verða verslanir og þjónustufyrirtæki en íbúðir á efri hæðunum, sem hugsaðar verða með þarfir eldri borgara í huga.
Sjá afstöðumynd og umfjöllun í Skessuhorni.