08. maí. 2015 08:00
Styrktarfélagið Göngum saman efnir til vorgöngu fyrir alla fjölskylduna víða um land á mæðradaginn, sunnudaginn 10. maí klukkan 11. Vitað er að hér á Vesturlandi verður a.m.k. gengið í Borgarnesi og Stykkishólmi. Í tilkynningu frá hópnum í Borgarnesi segir að lagt verði af stað frá íþróttahúsinu og gengið um bæinn í tæpa klukkustund. Göngunni lýkur við Geirabakarí. Auk þessara staða verður gengið í Reykjavík, á Patreksfirði, Ísafirði, Hvammstanga, Siglufirði, Akureyri, Egilsstöðum, Neskaupstað, Fáskrúðsfirði, Höfn, í Vestmannaeyjum og á Selfossi. Allar göngur hefjast kl. 11 og nánari upplýsingar um hvern stað verður að finna á heimasíðunni www.gongumsaman.is
Gangan er gjaldfrjáls en göngufólki gefst kostur á að styrkja rannsóknir á brjóstakrabbameini með frjálsum framlögum eða með því að festa kaup á varningi Göngum saman. Í ár verða meðal annars seldir bolir og höfuðklútar sem hannaðir voru sérstaklega fyrir félagið af Jör og margnota innkaupapokar hannaðir af Sigurborgu Stefánsdóttur.
Brjóstabollur með kaffinu alla mæðradagshelgina
Styrktarfélagið Göngum saman nýtur góðs af samstarfi við Landssamband bakarameistara sem stendur fyrir sölu á brjóstabollum í bakaríum um allt land dagana 7. – 10. maí í tengslum við mæðradaginn. Landsmenn eru hvattir til að bjóða upp á brjóstabollur með kaffinu alla mæðradagshelgina og láta þannig gott af sér leiða, brjóstanna vegna.
Styrktarfélagið Göngum saman styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og úthlutar styrkjum í október ár hvert. Göngum saman er grasrótarfélag þar sem allir gefa vinnu sína og megináhersla er á að öll framlög einstaklinga renni óskipt í styrktarsjóð félagsins. Frá stofnun félagsins, haustið 2007, hefur um 50 milljónum verið úthlutað til íslenskra rannsóknaraðila á sviði brjóstakrabbameins og í haust er stefnt að því að 10 milljónir renni til vísindarannsókna. Göngum saman leggur áherslu á miklvægi hreyfingar til heilsueflingar og á vegum félagsins eru vikulegar göngur á nokkrum stöðum á landinu mestan hluta ársins.