27. maí. 2015 03:00
Skagamaðurinn Tómas Guðmundsson hefur undanfarin misseri unnið að gerð nýrrar íslenskrar vefsíðu sem á sér enga sína líka. Um er að ræða vefinn tripcreator.com, sem rekinn er af ferðaskrifstofunni TripCreator, sem er að sögn Tómasar ólík öðrum ferðaskrifstofum á ýmsan hátt. „Þetta er alíslensk hugmynd sem kviknaði hjá stofnendum fyrirtækisins fyrir nokkrum árum síðan og gott dæmi um áhugavert og vel heppnað sprotafyrirtæki. Nokkrir einstaklingar sem voru að pæla á svipuðum nótum komu svo að hugmyndinni á seinni stigum,“ segir Tómas í samtali við Skessuhorn.
Fyrirtækið telur tíu starfsmenn og eru höfuðstöðvar þess á Íslandi en einnig er rekin þróunardeild í Litháen. „Þetta er að mörgu leyti öðruvísi ferðaskrifstofa en við eigum að venjast. Ekki eru seldar fyrirfram ákveðnar ferðir heldur getur fólk farið inn á síðuna, skipulagt og sérsniðið sína eigin ferð með hjálp þeirrar tækni sem TripCreator byggir á og er einstök á heimsvísu.
Rætt er við Tómas Guðmundsson í Skessuhorni vikunnar. Þar lýsir hann vefnum vel og segir frá sínum störfum hjá fyrirtækinu.