02. júlí. 2015 09:00
Fyrirtæki á Vesturlandi eru bjartsýn þegar horft er til svara við spurningum sem lúta að væntingum þeirra um framtíðina. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Samtök sveitarfélaga hafa unnið og birt er í fréttabréfi SSV, Glefsum. Könnunin var unnin síðasta haust og sá fyrirvari gerður að mögulega hafi væntingar breyst við nýgerða kjarasamninga. Spurningar voru lagðar fyrir stjórnendur fyrirtækja um væntingar þeirra til breytinga á starfsmannafjölda, fjárfestingar, framtíðartekjur og aðstæður í efnahagslífinu. Tæplega fjórðungur fyrirtækja á Vesturlandi telur að starfsmönnum þeirra eigi eftir að fjölga lítið eitt á næstu 12 mánuðum. Um 69% fyrirtækja sjá fyrir sér óbreyttan fjölda starfsmanna en tæplega 7% sjá fyrir sér fækkun starfsmanna, þar af eru um 1% fyrirtækja sem gera ráð fyrir að starfsmönnum eigi eftir að fækka mikið. Samkvæmt niðurstöðunni sjá miklu fleiri fyrirtæki á Vesturlandi fyrir sér fjölgun starfa (23%) frekar en fækkun. „Þetta er betri útkoma en í fyrra þegar spurt var um það sama,“ segir Vífill Karlsson hagfræðingur hjá SSV í fréttabréfinu. Ekki er stór munur á svörum milli svæða innan Vesturlands.
Ýmislegt athyglisvert kemur fram í könnuninni. Meðal annars að fyrirtæki í ferðaþjónustu hyggjast fjölga fólki og stefna á fjárfestingar. Einnig kemur fram skýr vísbending um að fjárfestingar aukist í landbúnaði. Þá telja fyrirtæki í byggingariðnaði að tekjur fari hækkandi. Útgerðarfyrirtæki eru heldur svartsýn þegar spurt var út í aðstæður í efnahagslífinu. Fyrirtæki í Dölum virðast vera bjartsýnni en á öðrum svæðum Vesturlands ef frá er talið hvort menn sjái aðstæður í efnahagslífinu eigi almennt eftir að verða betri eða verri. Nánari greining gaf til kynna að það verði rakið til samsetningar þeirra fyrirtækja sem tóku þátt fremur en landsvæðisins sjálfs, segir í Glefsum SSV.