03. júlí. 2015 10:29
Talsverð fjölgun umsókna er í grunnnám við Háskólann á Bifröst, en umsóknarfrestur rann út um miðjan síðasta mánuð. Nemendum sem sækja um háskólanám á Bifröst hefur fjölgað á hverju ári undanfarin tvö ár. Fjölgunin núna er mest í viðskiptalögfræði en sú nýbreytni verður tekin upp á komandi skólaári að boðið verður upp á viðskiptalögfræði í fjarnámi og einnig sem sérstök námsbraut með vinnu. Einnig hefja tvær nýjar námsbrautir á félagsvísindasviði göngu sína í haust, þ.e. BA í byltingafræði og BA í miðlun og almannatengslum. Fengu báðar nýju námsbrautirnar góðar viðtökur. Í tilkynningu frá skólanum kemur fram að umsóknartölur í meistaranám voru mjög góðar og eftirspurn eftir framhaldsnámi á sviði viðskipta og stjórnunar er mikil. „Að þessu sinni voru flestar umsóknir í MS í forystu og stjórnun sem hóf göngu sína haustið 2014 og hlaut þá strax gríðarlega góðar móttökur og höfðu aldrei fleiri skráð sig í meistaranám á einu skólaári. MA í menningarstjórnun var með næstflestar umsóknir en sú námsbraut er að hefja sitt ellefta starfsár við Háskólann á Bifröst.“
Auk fjölgunar umsókna að Bifröst kemur fram í frétt skólans að bakgrunnur nemenda er einnig sterkari en á undanförnum árum. Eru nemendur með betri einkunnir og grunn úr framhaldsskólum að sækja um háskólanám. „Sókn Háskólans á Bifröst heldur áfram,“ segir Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst. „Við erum ánægð með umsóknirnar og okkur virðist sem svo að umsækjendur séu nú með betri bakgrunn en áður. Við hlökkum því til skólastarfsins næsta vetur.“