06. júlí. 2015 09:01
Rauðhærðasti Íslendingurinn árið 2015 var valinn á Írskum dögum á Akranesi sem fram fóru um helgina. Að þessu sinni var það 17 ára stúlka, Laufey Heiða Reynisdóttir, sem vann titilinn. Laufey Heiða býr á Hólmavík og kom á Akranes til að taka þátt í keppninni. Hún fær að að launum ferð til Írlands fyrir tvo með Gaman ferðum. Efnilegasti rauðhærði Íslendingurinn var einnig valinn og var það Vigdís Birna sem hlaut þann titil og og fékk hún 10 þúsund króna gjafabréf frá Íslandsbanka að launum. Alls voru 29 keppendur skráðir til leiks.