10. júlí. 2015 09:12
Olíuskipið Bothnia liggur nú í Akraneshöfn en þangað kom það í gær til að sækja úrgangsolíu sem geymd er í tönkum á Breiðinni. Áður hafði Bothnia verið í sömu erindagjörðum í Reykjavík. Skipið er skráð í Gíbraltar og er hið snyrtilegasta að sjá. Áætlað er að Bothnia fari frá Akranesi í dag.