Senda Skessuhorni fréttaskot
Spurning vikunnar
Hver er þinn uppáhalds mánuður
Áskrift að Skessuhorni
Færð á vegum
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
14. júlí. 2015 09:01

Mögulegir viðkomustaðir ferðafólks kortlagðir og metnir

Ferðamálastofa hefur birt gögn sem söfnuðust í hinu viðamikla verkefni „Kortlagning auðlinda íslenskrar ferðaþjónustu“ en það er meðal aðgerða sem kveðið er á um í Ferðamálaáætlun 2011-2020. Um er að ræða verkefni sem nýtist við þróun og uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu, bæði opinberum stofnunum sem og einkaaðilum. Verkefnið miðar að því að kortleggja, með aðstoð landfræðilegra upplýsingakerfa, auðlindir ferðaþjónustu og helstu innviði svæða í samstarfi við heimafólk og greina þannig með myndrænum hætti hvar auðlindir ferðaþjónustunnar og tækifæri liggja til framtíðar.  Alta ehf. vann verkið á grundvelli útboðs sem efnt var til í samvinnu við Ríkiskaup vorið 2014 en Rannsóknamiðstöð ferðamála hafði áður unnið forverkefni sem tók til átta sveitarfélaga á Suðurlandi. Þá hafa Landmælingar Íslands einnig setið í stýrihóp verkefnisins og veitt ráðgjöf.

 

 

Meginmarkmið verkefnisins er að kortleggja staði þar sem upplifa má staðbundna og sérstaka eiginleika í náttúrufari eða menningu. Í gögnum um hvern stað kemur fram í hvaða flokka upplifanir á staðnum falla (fjörur, fossar, gil og gljúfur, o.s.fv.), mat á aðdráttarafli staðarins auk upplýsinga um aðgengi, aðstöðu o.fl. Skráningin gefur áhugaverðar vísbendingar um sérkenni svæða sem hugsanlega má nýta og/eða ástæða er til að vernda.

 

Til að tryggja gæði gagnanna voru sveitarfélög og aðrir hagsmunaaðilar út um landið beðnir um að tilnefna samráðsfulltrúa sem komu að skráningu, mati og yfirferð upplýsinga. Hlutverk fulltrúa var að meta skráða staði út frá aðgengi og aðdráttarafli, lagfæra staðsetningu, fara yfir skráðar upplýsingar um hvern stað og benda á staði sem ekki voru þegar skráðir. Matið fór fram í gegnum sérstakt vefviðmót. Komu um 350 manns um allt land að þessari vinnu sumarið 2014.

 

Birtingu upplýsinga um hluta staðanna var frestað, t.d. staða í þéttbýli og þeirra sem taldir eru viðkvæmir og þola illa ágang. Hliðarafurð verkefnisins er síðan vefsjá þar sem skoða má þá staði sem nefndir eru í Íslendingasögunum. Er það ekki síður áhugaverð kortlagning sem nýst getur í ferðaþjónustu. Aðgangur að gögnunum í vefsjá og nánari upplýsingar eru á vef Ferðamálastofu: www.ferdamalastofa.is/kortlagning

 

 

Öllum er heimilt að nýta upplýsingarnar að vild enda sé heimilda getið í samræmi við reglur og venjur þar um. Mögulegt er að fá gögnin afhent og tengja þau inn í landupplýsingakerfi, aðrar vefsjár og önnur forrit t.d. Google Earth. Gögnunum er miðlað með Geoserver landupplýsingaþjóni sem býður upp á mjög fjölbreytta miðlun, bæði með kortaþjónustu (WMS) og fitjuþjónustu (WFS). Geoserver miðlar gögnum í samræmi við opna staðla sem Open Geospatial Consortium (OGC) hefur þróað.

 

Lifandi verkfæri

Litið er á gagnagruninn sem lifandi tæki sem getur haldið áfram að þróast og eflast á næstu misserum. Vakin er athygli á að þetta er ekki hefðbundinn ferðavefur heldur gagnagrunnur ætlaður fyrst og fremst til stefnumótunar og skipulagsvinnu innan ferðaþjónustu. Núverandi viðmót er því aðeins fyrsta útgáfa og er þeim sem vilja koma með ábendingar eða leiðréttingar bent á að hafa samband með því að senda póst á netfangið kortlagning@ferdamalastofa.is

Leit á vefnum
Fréttasafn
Næsta ár Fyrra ár
Mest lesið í vikunni
Aðsendar greinar
Hulda Hrönn Sigurðardóttir

Þjónusta við einstaklinga með ...

Ásmundur Einar Daðason

Ljósleiðari á hvert heimili

Bjarni Jónsson

Landsnet verði í samfélagseigu

Ólafur Óskarsson

Betri byggð, öruggari umferð

Lilja Rafney Magnúsdóttir

Spilavíti eru „Víti til varnað...

Frá mbl.is

Ekki tókst að sækja efni

Frá visir.is

Ekki tókst að sækja efni

Skessuhorn á Facebook Skessuhorn á LinkedIn Skessuhorn á Twitter Skessuhorn á Instagram Skessuhorn ehf. kt. 560103-3870 - Kirkjubraut 56, 300 Akranes - Sími 433 5500 - Ritstjórn skessuhorn@skessuhorn.is