16. júlí. 2015 11:01
Eins og kunnugt er kom upp riða á þremur bæjum á Norðurlandi vestra fyrr á þessu ári. Bændur og dýralæknar eru uggandi yfir því að riða kunni að breiðast út frá því svæði, einkum vegna lélegs ástands sauðfjárveikivarnargirðinga, yfir á svæði sem hafa verið hrein eða þar sem ekki hefur greinst riða undanfarin ár. Á þessu ári hefur Matvælastofnun ellefu milljónir króna til viðhalds og niðurrifs eldri girðinga. Ljóst er að sú upphæð dugir ekki til að uppfylla lágmarks viðhald þeirra, eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns. Nú hefur Sigurður Ingi Jóhannsson atvinnuvegaráðherra tryggt viðbótarfjármagn, allt að tíu milljónir króna, til viðhalds á sauðfjárveikivarnargirðingum á þessu sumri til þess að bæta úr brýnustu þörfinni. Verður þessum fjármunum varið til bráðaviðgerða á þeim svæðum sem mest hætta er talin vera á um útbreiðslu veikinnar.