17. júlí. 2015 06:01
Íbúar á svokölluðum köldum svæðum, sem ekki búa við hitaveitu, svo sem á utanverðu Snæfellsnesi, geta átt von á því að rafmagnsreikningar þeirra vegna húshitunar lækki um 25 – 30% á næsta ári, fær Skessuhorn upplýst hjá Benedikt Guðmundssyni verkefnastjóra hjá Orkustofnun. „Það má segja að fólk þarna sé í dag að borga 7 til 8 krónur fyrir kílówattsstundina. Nú gæti það lækkað í 5 – 6 krónur því kostnaður vegna flutnings og dreifingar á rafmagni verður felldur niður,“ segir Benedikt. Skýringin á þessu er sú að Alþingi hafði það sem eitt af sínum síðustu verkefnum áður en það fór í sumarleyfi, að samþykkja breytingar á lögum um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar. Þær taka gildi á næsta ári. Reikna má með að þær verði að fullu komnar í gegn 1. apríl 2016.
Nánar í Skessuhorni vikunnar.