17. júlí. 2015 11:31
Slökkvilið Borgarbyggðar glímir nú við eld sem kraumar í mosa í Grábrókarhrauni um þrjá kílómetra sunnan við Bifröst. Ástæður þess að eldurinn kviknaði eru hins vegar harla óvenjulegar. Ferðamanni á reiðhjóli hafði orðið brátt í brók og fór út í úfið hraunið og gekk þar örna sinna. Eftir að hafa þrifið rassboruna samviskusamlega með pappír hugðist maðurinn fara að ábendingum sem honum hafði verið gefnar við aðstæður sem þessar og kveikti í salernispappírnum ofan í holunni. Dágóður eldur blossaði upp og kveikti í skraufaþurrum mosa í hrauninu. Maðurinn reyndi að slökkva með innihaldi vatnsbrúsa sem hann hafði við höndina, en það dugði ekki til og kallaði annar vegfarandi til slökkvilið.
En sagan er ekki öll, því hópur erlendra ferðamanna sem kom að vettvagni hélt að byrjað væri eldgos í Grábrókarhrauni. Flykktust ferðamennirnir út með myndavélar og búnað til að ná hamförunum á mynd. Þurfti að rýma svæðið til að slökkviliðsmenn gætu athafnað sig. Ja, svona er Ísland í dag!