17. júlí. 2015 12:10
Félagar í Slökkviliði Borgarbyggðar telja sig nú vera búna að ráða niðurlögum eldsins sem kveiktur var í Grábrókarhrauni, um þrjá kílómetra sunnan við Bifröst fyrir um klukkustund síðan. Að sögn Bjarna K Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra brunnu á að giska 100 fermetrar af mosa og gróðri. Verið er að rennbleyta svæðið til að fyrirbyggja að glóð leynist í mosanum.
Ástæða þess að eldurinn kom upp var sú að ferðamaður hafði gengið örna sinna í hrauninu og kveikt eftir það í salernispappírnum. Bjarni slökkviliðsstjóri segir einsýnt að stórauka verði upplýsingagjöf til ferðafólks um ýmislegt sem snýr að umgengni við náttúruna. Þá er jafnvel grunur um að ferðafólki sé einmitt ráðlagt af einhverjum að kveikja í salernispappír. "Þá er nú betra af tvennu illu að hafa fjúkandi salernispappír en hálft landið logandi," sagði Bjarni slökkviliðsstjóri.
Rétt er að árétta að jörð í Borgarfirði og víðar um vestanvert landið er afar þurr eftir þurrka undanarinna vikna. Öll meðferð elds er því bönnuð og ekki síður verða reykingamenn að drepa kyrfilega í vindlingum sínum.