23. júlí. 2015 11:00
Stakkhamar SH, nýr línubátur Sjávariðjunnar í Rifi, er væntanlegur fyrsta sinn til Rifs nú síðdegis. Stakkhamar lagði af stað frá Siglufirði í gær en hann var smíðaður hjá fyrirtækinu Siglufjarðar Seigur þar í bæ.
Stakkhamar er glæsilegt fley. Báturinn er 14,9 metrar á lengd og mælist 29 brúttótonn. Hann er sérhannaður til línuveiða með beitningavél og verður með 18 – 19.000 króka. Pláss er fyrir 22 kör í lest. "Við reiknum með að verða komnir í Rif milli klukkan 16 og 17 í dag. Siglingin gengur vel, við höldum tæpri 12 hnúta ferð, erum hér á hægu lensi í blíðuveðri suður með Vestfjörðunum," sagði Halldór Kristinsson skipstjóri þegar Skessuhorn ræddi við hann í morgun.
Með því að smella hér á bátasíðu Guðmundar Gauta Sveinssonar má sjá fleiri myndir af því þegar Stakkhamar fór frá Siglufirði í gær.