24. júlí. 2015 01:00
Þrír sundkappar úr Sri Chinmoy heimseiningar Friðarhlaupinu luku nú laust fyrir hádegi sundi yfir Hvalfjörðinn með logandi friðarkyndil. Þeir Aryavan Lanham frá Ástralíu, Chandrakanta Krull frá Bandaríkjunum og Sarvodaya Gregoryansky frá Úkraínu lögðu í hann kl.11 frá Katanesi og náðu landi við Eyrarkot hjá vitanum á Hvalfjarðareyri í Hvalfirði rétt í þessu. Björgunarsveit Akraness fylgdi sundmönnunum. Eftir það var hlaupið af stað til Reykjavíkur.
Sri Chinmoy heimseiningar Friðarhlaupinu lýkur kl.15 fyrir framan Alþingishúsið. Þar munu þingmenn úr ólíkum flokkum taka á móti Friðarhlaupinu og sameinast um Friðarkyndilinn. Þannig munu þau sýna með táknrænum hætti stuðning sinn við að hlúa að og byggja áfram upp friðarmenningu Íslands, sem Sri Chinmoy, stofnandi Friðarhlaupsins, kallaði einstaka.