30. júlí. 2015 01:30
Leikmenn Víkings Ó. ferðuðust suður yfir Hellisheiði og mættu Selfyssingum í 14. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í gær. Fyrir leikinn voru Víkingar í harðri baráttu á toppi deildarinnar, aðeins einu stigi á eftir Þrótti R. sem vermdi fyrsta sætið.
Víkingar voru heldur sterkari framan af fyrri hálfleik, án þess þó að skapa sér afgerandi marktækifæri. Heimamenn hefðu getað komist yfir á 30. mínútu þegar Jordan Lee Edridge fékk boltann einn og óvaldaður í vítateig Víkinga. Hann var hins vegar ekki í góðu jafnvægi og viðstöðulaust skot hans olli varnarmönnum Víkinga engum áhyggjum. Þeir komust svo yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks. Selfyssingum gekk trauðlega að hreinsa boltann frá marki sínu. Eftir klafs í teignum barst boltinn upp í loftið í átt að Hrvoje Tokic sem gerði sér lítið fyrir hamraði boltann í netið með bakfallsspyrnu. Glæsilegt mark og staðan í hálfleik 0-1, gestunum í vil.
Víkingar bættu öðru marki sínu við þegar tæpar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Aftur myndaðist dálítið klafs í vítateig Selfyssinga, nú eftir hornspyrnu. Boltinn barst til Alfreðs Más Hjaltalín sem var ekki í sérlega góðri stöðu. Hann náði þó að koma frekar lausu skoti að marki sem rúllaði framhjá markverði heimamanna og í netið.
Selfyssingar fengu tækifæri til að minnka muninn í uppbótartíma eftir góðan sprett Denis Sytnik. Hann lék á nokkra varnarmenn Víkings en skaut svo framhjá af örfárra metra færi.
Niðurstaðan á Selfossi í gærkvöld 0-2 sigur Víkings, nokkuð verðskuldað. Þeir eru því enn í baráttu á toppi deildarinnar, nú með 32 stig eftir 14 leiki og enn einu stigi á eftir toppliði Þróttar.
Í næstu umferð mætast toppliðin tvö, Víkingur og Þróttur, á Ólafsvíkurvelli laugardaginn 8. ágúst.