10. ágúst. 2015 02:20
Um helgina komu 29 fíkniefnamál upp hjá Lögreglunni á Vesturlandi og voru flest þeira tengd gestum tónleikanna Extreme chill festival sem haldin var á Hellissandi frá 7. til 9. ágúst. Um tónleikahald var að ræða og gistu flestir gestanna í tjöldum á svæðinu. Að sögn lögreglu hefur hátíðin síðustu árin verið haldin án mikilla afskipta laganna varða, en núna hélt lögreglan uppi markvissu eftirliti og notaði meðal annars tvo fíkniefnaleitarhunda. Mest var um neysluskammta að ræða sem lögreglan lagði hald á hjá fólkinu en einnig fundust efni sem talið er að hafði verið ætluð til sölu. Einkum var um kannabisefni að ræða en einnig fundust harðari efni eins og amfetamín og kókaín. Þá lagði lögreglan einnig hald á ætlaða ofskynjunarsveppi og skammta af ætluðu LSD og nokkrar töflur af ætluðu MDMA.
Í tengslum við samkomuna komu upp tvö barnaverndarmál. Þurfti lögreglan að hafa afskipti af fólki á tjaldstæði þar sem fíkniefnaneysla var í gangi og var fólk þar með ungt barn. Var þeim málum komið til barnaverndaraðila. Þá voru þrír ökumenn handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. „Samkomugestir voru margir ósáttir við afskipti lögreglu og var tvívegis gerður nokkur aðsúgur að lögreglunni þegar hún var að hafa afskipti af fólki. Handtók lögreglan nokkra aðila sem var sleppt að yfirheyrslum loknum. Talið var að rúmlega 200 manns hafi verið á þessum tónleikum,“ segir í tilkynningu lögreglu vegna samkomunnar.