25. september. 2015 01:25
Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðarráðherra hefur undirritað reglugerð sem heimilar innflutning á erfðaefni holdanauta en samkvæmt henni er nú heimilt að flytja inn sæði og fósturvísa. „Tilgangurinn er að efla innlenda framleiðslu á nautakjöti, en Landssamband kúabænda hefur þrýst mjög á að innflutningurinn verði heimilaður. Innflutningur erfðaefnis og eldi á nautgripum verður háð ströngum skilyrðum og mun Matvælastofnun fylgjast með því að þeim verði framfylgt. Eingöngu má nota erfðaefnið á sérstökum einangrunarstöðvum sem uppfylla skilyrði reglugerðarinnar,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Gangi áætlanir Landssambands kúabænda eftir má gera ráð fyrir að fyrstu gripirnir sem vaxa af innfluttu erfðaefni muni fæðast næsta vor. Eftir það verða að líða níu mánuðir áður en heimilt verður að flytja gripina af einangrunarstöð. Framleiðsla á nautakjöti innanlands hefur undanfarin ár ekki náð að anna eftirspurn og nam innflutningur á nautakjöti rúmum þúsund tonnum í fyrra. Stefnir í að meira þurfi að flytja inn til að mæta sífellt aukinni eftirspurn. Ekki síst vegna fjölgunar erlendra ferðamanna.