29. september. 2015 08:01
Stofnþing Hnefaleikasambands Íslands (HNÍ) verður haldið miðvikudaginn 30. september kl. 18 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í Reykjavík. Á þinginu verður fyrsta stjórn sambandsins kosin. Á vormánuðum 2002 setti ÍSÍ á stofn nefnd um ólympíska hnefaleika og hefur markmið nefndarinnar verið að hafa umsjón með útbreiðslu og uppbyggingu greinarinnar undir leiðsögn og eftirliti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og að undirbúa stofnun sérsambands um ólympíska hnefaleika. Ólympískir hnefaleikar eru starfandi í eftirtöldum héraðssamböndum/ íþróttabandalögum innan ÍSÍ: Íþróttabandalagi Reykjavíkur, Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar, Íþróttabandalagi Reykjaness, Íþróttabandalagi Akraness og Ungmennasambandi Kjalarnessþings. Með stofnun Hnefaleikasambands Íslands verða sérsambönd ÍSÍ orðin 31 talsins.
-fréttatilkynning