22. febrúar. 2005 09:39
Skipulags- og umhverfisnefnd Akraneskaupstaðar efndi nýlega til opins kynningarfundar um endurskoðað deiliskipulag Sólmundarhöfða en það er nú í vinnslu. Arkitektastofan Arkitektur.is hefur verið ráðin til að vinna tillögur og mættu arkitektarnir Elín Kjartansdóttir og Guðmundur Gunnarsson á fundinn og gerðu grein fyrir fyrstu drögum. Fram kom í kynningu Magnúsar Guðmundssonar, formanns skipulags- og umhverfisnefndar í upphafi fundarins að megintilgangur fundarins væri að fá fram sjónarmið íbúa og hagsmunaaðila sem arkitektarnir tæku með sér sem veganesti við frágang endanlegrar tillögu. Fundurinn var mjög vel sóttur og mörg sjónarmið komu fram. Efnt verður til annars fundar þegar deiliskipulagstillaga verður komin á lokastig.