01. apríl. 2016 09:01
Hópur íbúa í Borgarnesi hefur ákveðið að taka sér mótmælastöðu í dag klukkan 13:00 á brúnni yfir Brákarsund í Borgarnesi. Hópurinn hyggst mótmæla harðlega þeirri ákvörðun sveitarstjórnar frá því á aukafundi í morgun að nýta heimild í gildandi skipulagi fyrir Brákarey að gera eyjuna að löggiltu skattaskjóli. Til að svo verði er ætlun sveitarstjórnar að láta sprengja brúna þannig að samgöngur af landi verði ekki mögulegar út í eyjuna, en það er skilyrði fyrir slíkum frísvæðum samkvæmt ESB reglugerð. Þessi gjörningur mun gefa Borgarbyggð möguleika til að láta byggja upp fríverslun í eyjunni og heimila jafnframt fjármálafyrirtækjum að taka sér þar lögheimili. "Þetta þýðir að hægt verður að veita fyrirtækjum með starfsemi í eyjunni gríðarleg skattaleg fríðindi en færa sveitarsjóði engu að síður gríðarlegar tekjur. Við getum vel byggt hér skattaskjól líkt og þekkt er t.d. á Bresku Jómfrúreyjum. Þetta
yrði svona win-win fyrir bæði fjármálafyrirtækin og okkur, sannkölluð Tortóla norðursins og myndi vekja gríðarlega athygli," sagði Björn Bjarki Þorsteinsson forseti sveitarstjórnar í samtali við Skessuhorn.
"Við viljum enga andskotans fjármálamógulá hingað í Borgarnes og krefjumst þess að fá að hafa litlu og friðsælu eyjuna okkar í friði. Fornbílafjelagið væri auk þess komið í húsnæðisþröng og ýmislegt sem byggt hefur verið upp í eyjunni á síðustu árum yrði unnið fyrir gýg. Því ætlum við að mótmæla þessum áformum sveitarstjórnar og koma saman á brúnni klukkan 13 í dag," sagði einn skipuleggjenda mótmælanna í samtali við Skessuhorn.