02. maí. 2016 10:01
Rarik vill koma á framfæri tilkynningu til raforkunotenda vegna fyrirhugaðs straumleysis tvö kvöld í þessari viku. „Rafmagnslaust verður sunnan Skarðheiðar vegna vinnu í aðveitustöð við Brennimel í Hvalfirði. Fyrra straumleysið er aðfararnótt þriðjudagsins 02. maí frá kl. 00:00 til kl. 03:00. Seinna straumleysið er aðfararnótt föstudagsins 06. maí frá kl. 00:00 til kl. 01:00 vegna lúkningar verka og prófana. Um er að ræða allt svæðið sunnan Skarðsheiðar, þ.e. Melasveit, Leirársveit, Melahverfi, Hvalfjörð, Hlíðarbæ, Hvalfjarðargöng, Innri Akraneshrepp og Kjósarhrepp. Hafið ekki viðkvæm raftæki í notkun þegar rafmagnið fer af og hugið að endurstilla öll tímastillt raftæki sem kunna að hafa breytt sér. Rarik biðst velvirðingar á þeirri röskun sem rafmagnsleysið hefur í för með sér fyrir notendur,“ segir í tilkynningu frá Rarik á Vesturlandi.