04. maí. 2016 06:00
Á morgun uppstigningardag 5. maí, verður veitingahúsið Englendingavík formlega opnað í Borgarnesi. Nýir eigendur keyptu húsakost í víkinni á liðnu ári og hafa undirbúið opnun, sett upp heimagistingu í Sjávarborg og opna nú veitingastaðinn. Á laugardaginn verður auk þess boðið upp á bókamarkað og upplestur fyrir börnin í pakkhúsinu. Að sögn Einars S Valdimarssonar rekstrarstjóra er Englendingavík perla í elsta hluta Borgarnes. „Hér er ró og friður sem einungis er rofin af fuglasöng og sjávarnið. Í gömlu kaupfélagshúsunum þar sem stunduð var verslun til áratuga verður nú rekinn veitingastaðurinn Englendingavík og heimagistingin í Sjávarborg,“ segir Einar. „Í veitingahúsinu verður lögð áhersla á notalegt andrúmsloft í anda gömlu húsanna í víkinni. Matseðillinn tekur mið af mat úr héraði eftir fremsta megni, frá sjó og úr sveit. Einfaldari matseðill verður í hádeginu en „a la carte“ á kvöldin. Þá verður hægt að fá kaffi og kökur um miðjan daginn. Einar segir að opið verði frá k. 11:30 – 23:00, en opnunartímar á veturna verða kynntir þegar nær dregur.“