09. mars. 2005 09:48
Vitað er að a.m.k. 6 kindur ganga enn úti í Hraunsfirði á Snæfellsnesi og flýja þær til fjalla í hvert sinn sem reynt er að ná þeim. “Kindurnar eru beinlínis snarvitlausar því í hvert sinn sem reynt er að nálgast þær, eða þær heyra í bíl, taka þær á rás og eru umsvifalaust horfnar,” sagði fjárbóndi sem ásamt öðrum hefur gert ítrekaðar tilraunir til að ná kindunum. Ein kind úr hópnum náðist þó fyrir skömmu og kom þá í ljós að hún hafði gengið úti í tvo vetur. Kindurnar eiga auðvelt með að leynast í giljum og skriðum m.a. í Fjarðarhornshyrnu og ljóst að þær eru síst á því að láta ná sér. “Þær hegða sér líkt og villifé sem hefur aldrei undir manna hendur komið,” sagði bóndinn sem Skessuhorn ræddi við. Kindurnar geta leynst á stóru landssvæði og ljóst að sökum þess hve bú eru orðin fá á Snæfellsnesi, þá reynist sífellt erfiðara að smala fé af fjalli á haustin þannig að hreinsmalað verði.