27. apríl. 2005 12:23
Heimili og skóli – landssamtök foreldra, leita nú eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna sem veitt verða í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík þann 17. maí nk. Foreldraverðlaunin eru veitt þeim aðila/aðilum sem á yfirstandandi skólaári hafa unnið frábært starf í þágu skóla, foreldra og barna. Við veitingu verðlaunanna er sérstaklega litið til verkefna sem stuðlað hafa að eflingu samstarfs heimila og skóla og aukinni virkni foreldra, nemenda, skólastarfsmanna og annarra aðila sem koma að þessu mikilvæga samstarfi. Foreldraverðaunin verða nú veitt í 10. sinn og er aðalmarkmið með veitingu þeirra að vekja athygli á því gróskumikla starfi sem unnið er á fjölmörgum sviðum í grunnskólum landsins. Árlega velur sérstaklega skipuð dómnefnd eitt verkefni til verðlauna. Að auki verða í ár veitt sérstök hvatningarverðlaun og dugnaðarforkaverðlaun ef tilefni þykir til. Tilnefningum skal skila fyrir 4. maí á þar til gerðum eyðublöðum til Heimilis – og skóla að Suðurlandsbraut 24 sjá nánar á heimasíðu þeirra heimiliogskoli.is
Skessuhorn hvetur skóla og foreldra á Vesturlandi til þátttöku í þessu verkefni og senda inn tilnefningar. Víða í landshlutanum er verið að vinna athyglisvert og metnaðarfullt starf sem verðskuldar athygli. Samtökin Heimili og skóli líta nú til landsbyggðarinnar í þessu vali þar sem, eins og segir í tilkynningu frá samtökunum; "skólamál eru svo sannarlega byggðamál."