02. júní. 2005 07:39
Í gær hófst formlega í annað skipti ljósmyndasamkeppni Ljósmyndasafns Akraness í samvinnu við Pennann og Skessuhorn. Að sögn Helga Steindals, forstöðumanns Ljósmyndasafnsins, er almenningi gefinn kostur á að senda inn skemmtilegar sumarmyndir frá Vesturlandi. Myndirnar skulu teknar á tímabilinu 1. júní til 1. september í ár. Þær þurfa að vera teknar á stafrænar myndavélar og verða að vera í góðri upplausn og er þá verið að tala um myndir úr vélum sem eru þriggja megapixla eða stærri. Viðfangsefni myndanna má vera hvað sem er. Tekið er við þeim í verslun Pennans við Kirkjubraut 54 á Akranesi og er jafnframt þar hægt að fá myndir brenndar á CD diska. Þær skulu merktar nafni og kennitölu myndatökumanns og gjarnan stað og stund myndefnis. Nánari upplýsingar um samkeppnina má finna á vef Ljósmyndasafns Akraness á slóðinni: www.akranes.is/ljosmyndasafn