07. júní. 2005 08:43
Í kvöld kl. 20:30 flytur Þórður Ingi Guðjónsson fyrirlestur sem nefnist Uppljóstranir í gerðum Gísla sögu, í bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti. Gísla saga Súrssonar er varðveitt í tveimur heillegum gerðum sem nefndar hafa verið „styttri gerð“ (M) og „lengri gerð“ (S). Þá hefur varðveist brot af þriðju gerðinni (B). Gerðir Gísla sögu gefa víða tilefni til ólíkra túlkana. Er skemmst að minnast frásagnanna af morðunum tveimur sem framin eru, annars vegar þegar Vésteinn Vésteinsson er veginn og hins vegar þegar Gísli vegur Þorgrím goða. Í fyrirlestrinum mun Þórður Ingi ræða um varðveislu sögugerðanna í handritum, fyrirhugaða útgáfu sína á sögunni og þann mun sem er á gerðunum. Í því sambandi mun hann einkum ræða um tvo staði í sögunni sem skipta miklu máli fyrir framvindu hennar. Í báðum tilvikum er ljóstrað upp um mál sem legið höfðu í þagnargildi um skeið. Einnig verður fjallað um annars konar uppljóstranir hjá höfundi lengri gerðar sögunnar.
Að loknum fyrirlestri er boðið upp á veitingar en síðan gefst gestum tækifæri til að ræða efni fyrirlestrarins. Aðgangseyrir er 500 kr. og eru allir velkomnir.