09. júní. 2005 07:49
Eigendur Steinaríkis Íslands og Maríukaffis, sem undanfarin 4 ár hefur verið rekið í Safnaskálanum á Görðum, hafa selt safnið og veitingarekstur til Byggðasafns Akraness og nærsveita. Samningurinn miðast við að Byggðasafnið taki við rekstrinum frá og með 16. júní nk. Hjónin Þorsteinn Þorleifsson og Snjólaug María Dagsdóttir, ásamt bróður hennar Jóni Dagssyni, stofnuðu Steinaríki Íslands fyrir 11 árum síðan, þá á Vegamótum á Snæfellsnesi. Til Akraness fluttu þau starfsemi safnsins árið 1998. Með samningi þessum nú selja þau allt steinasafn Steinaríkis Íslands sem er eitt stærsta innisafn steina og steingervinga hér á landi og mun safnið frá miðjum þessum mánuði verða rekið sem sérsafn innan Byggðasafns Akraness og nærsveita.
“Þessi kaup okkar gera það að verkum að nú verða öll söfn á Safnasvæðinu rekin sem ein heild af sama rekstraraðila. Við munum nota sumarið til að leggjast yfir hvernig rekstrarform veitingaaðstöðunnar og sölustarfsemi í húsinu verður háttað í framtíðinni. Í sumar munum við ráða til okkar “myndarlega húsmóður” til að sjá um rekstur veitingasölunnar en Maríukaffi er vinsæll veitingastaður og gegnum hann einan og sér fara nokkur þúsund gestir á hverju ári,” sagði Jón Allansson, forstöðumaður Byggðasafnsins í samtali við Skessuhorn.
Aðspurður um aðsókn að Safnasvæðinu það sem af er vori og sumri segir Jón að hún sé góð og líkleg sé um fjölgun að ræða frá fyrra ári og sérstaklega í hópum skólafólks. “Ég er því mjög bjartsýnn á sumarið,” segir Jón.