25. júní. 2005 08:40
Aðalfundur kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi var haldinn að Laugum í Sælingsdal 11. júní sl. Fundurinn samþykkti áskorun þess efnis að skora á Samfylkingarfélaga um allt land að beita sér fyrir því að Samfylkingin bjóði fram í sem flestum sveitarfélögum undir eigin nafni í næstu sveitarstjórnarkosningum.
“Fundurinn lýsti þungum áhyggum af þeim sívaxandi vanda sem stafar að atvinnulífinu vegna ruðningsáhrifa stóriðjustefnunnar. Hágengisvandinn bætist nú ofan á þá eyðibyggðarstefnu sem stjórnvöld reka og kemur verst niður á smærri sjávarbyggðum og ferðaþjónustu. Fiskvinnslu hefur m.a. verið lokað á Bíldudal og Hofsósi af þessu ástæðum og samskonar fréttir berast af Austfjörðum.”
Í tilkynningu sem send var Skessuhorni eftir fundinn kemur fram að fundarmenn minna á að margar byggðir á norðvesturhluta landsins standi veikt bæði til sjávar og sveita og skoraði fundurinn á stjórnvöld að standa við yfirlýsingar m.a. forsætisráðherra um stuðning við þennan hluta landsins. Fundurinn undrast áhugaleysi ráðherra byggðamála í málefnum svæðisins. Landsmenn, en þó sérstaklega þær byggðir sem næst liggja okkar sameiginlegu auðlindum, eiga að njóta þeirra sérstaklega.
Fundurinn krefst þess að stjórnvöld rétti hlut þessa svæðis með með því að beita sér fyrir:
- Að byggðastefna nái til alls Norðvesturkjördæmis, ekki aðeins eins vaxtarkjarna á Vestfjörðum.
- Bættum samgöngum milli byggðakjarna og við höfuðborgarsvæðið.
- Auknum stuðningi við háskólanám í Norðvesturkjördæmi.
- Fjölgun starfa í þjónustu- og iðngreinum með nýsköpun þar sem ekki er að vænta fjölgunar starfa í landbúnaði eða fiskiðnaði.
- Að möguleikar til fjarskipta um netið verði að fullu jafnaður þannig að landsmenn sitji allir við sama borð í fjarskiptamálum.
- Að beita sér fyrir að virkjanleg orka sé nýtt í heimahéraði, til aukinnar hagsældar fyrir íbúa kjördæmisins.
- Að gera íbúum sjávarbyggða kleift að njóta nálægðar við þær auðlindir sem urðu til þess að byggðin þróaðist.