29. júní. 2005 10:17
Fyrstu gestir Hótels Hamars í Borgarnesi eru skráðir inn á morgun, fimmtudag en þá er gert ráð fyrir að framkvæmdum verði lokið við afgreiðslu, matsal, eldhús, fundarsal og stærri álmu hótelsins sem í eru 20 herbergi. Seinni herbergisálman verður síðan opnuð viku síðar, eða 7. júlí.
“Reising hússins hófst í byrjun mars og hefur verkið gengið í alla staði mjög vel og höfum við verið heppin með einvalalið iðnaðarmanna sem nánast allir eru úr Borgarnesi og nágrenni,” sagði Hjörtur Árnason, hóteleigandi í samtali við Skessuhorn. Þó lítið fari fyrir hótelinu frá þjóðveginum séð er það hið glæsilegasta þegar inn er komið. Víst er að hér á landi er ekkert hótel annað sem nánast er byggt inn á teigi golfvallar en með staðsetningunni einni saman hefur hótelið þegar skapað sér talsverða sérstöðu meðal hótela enda eru pantanir áhugasamra golfspilara þegar farnar að berast.