10. júlí. 2005 09:17
Ungmennafélag Íslands og Pokasjóður eru að fara af stað með umhverfisverkefni. Verkefnið felst í því að vekja landsmenn til umhugsunar um gildi þess að ganga vel um umhverfið og eru þeir hvattir til að taka þátt í verkefninu með því að fara út og tína rusl, í merkta ruslapoka sem þeir fá senda heim. Verkefninu er ætlað að vera bæði forvarnarstarf sem og framkvæmdarátak. Verkefnið er auglýst svohljóðandi; Þjóðartilþrif með Ungmennafélagi Íslands og Pokasjóði. “Látum greipar sópa umhverfið”. Stefnt er að því að senda pokana inn á öll heimili í landinu nú í byrjun júlí. Þegar fólk hefur fyllt pokann af rusli sem liggur á víð og dreif í umhverfinu gefst því kostur á að senda nafn sitt inn til UMFÍ til að taka þátt í happadrætti.