12. ágúst. 2005 08:11
Markaðsdagurinn á Akranesi verður haldinn á Safnasvæðinu að Görðum á morgun, laugardag eins og gert hefur verið undanfarin ár. Á svæðinu verður sett upp stórt sölutjald þar sem verða ótal söluborð með alls kyns varningi, sem gaman er að virða fyrir sér og eflaust verður hægt að gera góð kaup. Í samtali við Skessuhorn sagði Jón Allansson á Byggðasafni Akraness og nærsveita að þátttakan væri góð í ár: “Það eru á þriðja tug aðila búnir að skrá sig þannig að það verður líflegt hérna á laugardaginn. Það verða hér söluaðilar frá öllum landshlutum og ég á von á fjölbreyttri vöru. Hingað getur fólk komið með handverk, sultur eða fótanuddtæki, bara nefndu það.” Sölutjaldið verður opið frá kl. 12-17.