24. ágúst. 2005 11:15

Listamaðurinn Benedikt S. Lafleur lagði síðastliðinn sunnudag af stað í óvenjulegan leiðangur um Vestfirði. Hann ætlar að synda yfir alla firði á Vestfjörðum, að Ströndum undanskildum, en Benedikt er þaulvanur sjósundskappi og núverandi formaður Sjósundsfélags Íslands. Markmiðið með þessari óvenjulegu sundferð, sem ætlunin er að standi í hálfan mánuð, er að vekja athygli á dásemdum Vesfjarða en Benedikt segir uppátæki sitt vera einskonar óð til landshlutans.
Benedikt hóf ferðalagið klukkan átta á sunnudagsmorgni með því að stinga sér til sunds í Gilsfirði á móts við Ólafsdal. Hann var um fjörtíu mínútur á sundi í rétt rúmlega tíu gráðu heitum sjónum en Björn Samúelsson stýrimaður á Reykhólum fylgdi sundkappanum eftir á gúmmíbáti. Þegar Benedikt steig á land handan fjarðarins tók Einar Thorlacius sveitarstjóri Reykhólahrepps á móti honum og bauð velkominn á Vestfirði en að undanförnu hefur Gilsfjörðurinn verið kynntur sem hlið að Vestfjörðum.
GE